Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir
Drengirnir halda áfram á rúntinum og ílengjast í Hafnafirði. Við ítrekum að hljómgæðin og tja, hljóðstílinn á talinu, er frábrugðin því sem gengur og gerist í þáttunum sem við gerum í hljóðveri vegna þess að við erum vissulega á rúntinum. Við erum á raunrúntinum, krakkar, með þráðlausa hljóðnema og ég veit ekki hvað og hvað.
Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið í eldinn bræður og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænýrri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli.
Til grundvallar lágu lög frá:
DISMEMBER
KISS IT GOODBYE
BRUTUS
CONJURER
SLIFT
SLUGDGE
Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að samlokum.
SÁTAN 2026 ER Á NÆSTA LEITI.
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA HÉR.
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
SNÆFUGL hlaðvörp