Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir
Eftir að hafa lent undir fyrirséðum árstíðarskaflinum þá eru félagarnir Hörður Ólafs og Birkir Fjalar komnir á rúntinn og hlustendum Þungarokksþáttarins Stokkið í eldinn er boðið með.
Meðal efnis í snörpum þætti eru niðurstöður Wacken Metal Battle á Íslandi 2026, Sátan 2026, önnur ný CONVERGE, GAVIN PORTLAND furðumál, tónleikavenjur Íslendinga, þrass á Akranesi nýjasta lag krakkanna í KORN og sitthvað fleira.
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
SNÆFUGL hlaðvörp