Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir
Fyrsti Stokkið á rúntinn gekk svona glimrandi vel en vegna tímaskorts þá gátum við bara farið yfir og brugðist við lögunum frá Hödda. Upphaflega áformið var, að á sama rúnt, fengi Höddi að hlusta á þrjú lög frá Birki. Nýverið var unnin bragabót á þessu öllu saman þegar kumpánarnir fóru á annan kærkominn rúnt til að hlusta á og tala um tónlist líkt og tíðkaðist svo gjarnan árum áður þegar snældur og Sony Discman réðu ríkjum í bifreiðum tónlistaþyrstra landsmanna.
Upplegg og nálgun er einhvernvegin svona; Birkir ber undir Hörð þrjú lög sem hann að öllum líkindum þekkir ekki en þarf að bregðast við í rauntíma. Kemur þá í ljós hvort hann hafi haft gaman af, hvað stóð hæst, hvað var ábótavant og svo framvegins. Svo er allur gangur á því hvert umræðurnar leiða. En við getum þó sagt sem svo að STRIGASKÓR NR. 42 hugvekja hafi átt sér stað með tilheyrandi þrýstingi og losun.
Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið í eldinn bræður og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænýrri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli.
Til grundvallar lágu lög frá:
UNDEATH
STRIGASKÓR NR. 42
BLACK SABBATH
POISON THE WELL fylgdu svo óvænt með til viðauka.
Einnig var lauflétt farið yfir tilvonandi Wacken Metal Battle Iceland sem fram fer í Iðnó 26. apríl næstkomandi. Tryggið ykkur miða HÉR.
Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að leikslokum.
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
SNÆFUGL hlaðvörp