Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

053: SÁTAN 2026 undirmulningur m. Kidda Crowley (Ultra Magnus/Málmsmiðjan/X977)

Episode Notes

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir

Birkir Fjalar fær loksins að nördast og grallarast með Kidda Crowley sínum (og Hörður Ólafs fær kærkomið frí frá þeim fyrr nefnda) þegar blásið var til Sátufundar vegna ærinnar ástæðu... Jú jú; SÁTAN 2026 er handan við Skessuhornið! Í mannsögulegu samhengi þá er 'etta að bresta á, vinir!

Kristinn Reyr og Birkir Fjalar fara í þessum þætti yfir það sem er í vændum á SÁTUNNI en fyrst og fremst er um fögnuð að ræða. Einhver myndu kalla þetta upphitun en fyrir okkur er þetta sálumessa. Og við erum bara rétt að byrja.
Birkir talaði um WORLD NARCOSIS í 537. skiptið og Kristinn lúslas jarðfræðigögn og rannsóknir á jarðlögum í og við fjallið Gölt í Súgandafirði. Mjög þungarokks, því getum við lofað.

Sérstaka þakkir fær Tommi Steindórs og X977.

Kaupið miða og dagspassa sem fyrst HÉRNA.

Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

 

Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  

Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  

Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.

Luxor er þekkingarhús viðburða.  

Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

SNÆFUGL hlaðvörp