Moonstone Tattoo Reykjavík
CROWBAR er hjartahljómsveit Birkis og fleiri Reyðfirðinga og sömuleiðis er það hjartahljómsveit Sigvalda dordinguls Ástríðarsonar góðavinar þáttarins, aldavinar Birkis. Það spurðist svo út að CROWBAR væru á leið í túnfót Íslands, einnig þekktur sem Bretlandseyjar, þá hófst Birkir handa við að róta saman fólki sem farið gæti með honum út til að sjá hetjurnar. Alltént mátti þetta tækifæri til að sjá sína uppáhalds í fyrsta og jafnvel eina skiptið ekki renna honum úr greipum. Hvernig valdist í hópin getur almættið eitt útskýrt en góður var hann. Á augabragði varð til fimm manna föruneyti elskandi vina sem sá CROWBAR í Portsmouth einn daginn og London þann næsta.
Afraksturinn er skríkjandi tættur þáttur hvar gleði, galsi, gauragangur, karlakímni og einkahúmur ríður við einteyming ásamt "dýnamískum" hljóðheim út af sottlu. Alveg óvænt; krúttleg upphaf-vináttu-saga Valla og Birkis.
Áður en við dembum okkur saman í CROWBAR af fullum þunga þá kölluðum við Kristján B. Heiðarsson til verka enda er útkomið splunkunýtt lag með krökkunum í SEPULTURA. Það yrðum við allir að tækla.
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
SNÆFUGL hlaðvörp